París

by Sigga Email

Hæ hæ!

Þá erum við komin til Parísar eftir langt 30 klst ferðalag! Rikki og Ásta tóku vel á móti okkur og við sváfum eins og englar síðustu nótt :) Í dag kíktum við aðeins í búðir og heimsóttum svo Ástu í vinnuna áður en við fórum að skoða Eiffelturninn (neðan frá.. ætlum upp í hann á morgun eða hinn það var svo kalt í dag og langar raðir) Við höfum það bara rosa notalegt hérna og ætlum að reyna að nýta helgina vel. Svo er það bara Ísland á mánudaginn!

Úlfur er orðinn svo stór hann var nú bara rétt í þessu að rölta inn í stofu til okkar.. eða hann skríður út um allt og stendur svo upp og gengur meðan hann getur haldið sér í eitthvað :) oh svo sætur!
jæja bless í bili sjáumst eftir 3 daga..
kveðja Sigga og Óttar

Pattaya

by Sigga Email

Hae hae, erum i Pattaya allt gott ad fretta.. forum til Bangkok a morgun og stoppum thar i 2 naetur adur en vid fljugum heim.. bae i bili kv Sigga og OTtar

Kampot

by Sigga Email

Hæhæ! Við Óttar erum komin til Kampot sem verður síðasta stoppið okkar í Kambódíu í þetta skiptið.. Við kvöddum Ingu Maríu og Ásgeir í gærkvöldi og fórum út að borða og svo í minnsta tívolí í heimi ;)

Dvölin í Sihanoukville var alveg frábær, ekki alveg jafn mikið sólbað og við ætluðum samt.. því við klaufuðumst til að skaðbrenna bæði fyrsta daginn (erum í hamskiptum núna..) En við fórum nú samt í siglingu síðasta laugardag öll saman og fórum á alveg auða strönd með fullum báti af partýfólki og þar var grillað og spilað blak og fótbolta.. mjög gaman! vegna áðurnefndra hamskipta fór ég bara fullklædd í sjóinn og hélt mér í skugganum :)

Kampot er lítill bær á suðurströndinni sem er þekktastur fyrir piparræktun. Besti pipar í heimi, við erum öll sammála um það! Á tímunum fyrir byltinguna var ekkert fínt veitingahús í París án Kampot-pipars! En allavega, bærinn lagðist nánast í eyði þegar Khmer Rouge öfgastjórnin tók við völdum og í dag er hann aftur í uppbyggingu. Við komum hingað til þess að skoða yfirgefið hótel (Bokor Hill Station) en vegurinn upp að því var lokaður núna því það er einhver hótelakeðjan búin að kaupa svæðið og ætlar að byggja risa spilavíti/hótel þarna.. Við fórum því bara á aðrar slóðir í dag, leigðum mótorhjól og skoðuðum risastóran hálf-yfirgefinn dýragarð (það er ennþá einhver sem gefur dýrunum að borða) en við vorum eina fólkið á svæðinu fyrir utan fimm ca 10 ára gamlar skólastelpur sem búa líklega í nágrenninu og voru að hlæja að öpunum. það var svolítið sérstök sjón að koma þarna, hlutar svæðisins eru gjörsamlega í eyði, til dæmis eldgömul tívolítæki og rólur..
Eftir dýragarðinn kældum við okkur aðeins niður í nærliggjandi á sem er vinsælt helgargaman hjá infæddum. Eðal dagur alveg!

Við ætlum nú samt að fara héðan í fyrramálið, enn og aftur til Thailands, og kíkja á einhverja strönd til þess að ná síðustu sólargeislunum sem við fengum ekki í Sihanoukville! :) Svo er flugið okkar til Parísar bara eftir 10 daga sem er aaalltof stutt því þegar við bókuðum flugið fyrir mánuði síðan fannst okkur við eiga helling eftir en tíminn er búinn að líða fáránlega hratt! Við hlökkum samt til að fara til Parísar og líka pínu að koma heim ;)

Jæja kveðjum í bili
Sigga og Óttar

Sihanoukville

by Sigga Email

hae hae bara lata vita af okkur, komin a strondina.. lofar godu! reyndar rigndi a okkur i dag en leigubilstjorinn sagdi ad thad hefdi verid fyrsta rigningin i thrja manudi :)

erum i rauninni ekki med mikid plan fyrir naestu daga, blogga meira seinna :)

kv. Sigga

Phnom Penh aftur :)

by Sigga Email

Hae hae! Vid erum komin ur moldinni i Rattanakiri aftur til hofudborgarinnar.. I thetta skiptid erum vid buin ad sja alveg helling herna, forum i shooting range hja hernum thar sem strakarnir fengu ad prufa haglabyssu og m16/colt (voda sport hja theim.. vid Inga Maria skildum ekki alveg hvad var svona merkilegt vid thetta alltsaman :) thegar vid komum thangad tha var theim lika bodid ad skjota ur rocket launcher sprengjuvarpa fyrir 250 dollara! en their letu thad nu vera..

svo forum vid ad skoda tuol sleng safnid sem var menntaskoli herna fyrir tima khmer rouge en their breyttu thvi i fangelsi thar sem 20.000 manns voru vistadir a 3 ara timabili, thar a medal fuullt af konum, bornum, gamalmennum.. folk sem var fangelsad fyrir ad vera eitthvad menntad, med bumbu, nota gleraugu, eda bara fyrir hvada astaedu sem er nanast var pyntad tharna og drepid a the killing fields herna rett utan vid borgina (sem vid erum ad fara ad skoda i dag..) af ollum 20.000 lifdu 7 manns af og vid saum m.a. heimildamynd med vidtali vid einn fyrrum fanga tharna. Rosalega ahugavert safn! vid komum i hadeginu og forum ekki ut fyrr en lokadi kl 18..

sidan erum vid buin ad skoda national museum og konungshollina sem var voda flott! einhvernvegin vikur samt flest i samanburdi fyrir tuol sleng nuna thvi thad var svo rosalega einstakt..

a morgun erum vid a leidinni til Sihanoukville sem er strandbaer fyrir sunnan, thar naelaegt er lika einhver flottur thjodgardur sem vid aetlum ad skoda og svona :)

hey ja.. gleymdi ad segja ad vid hittum fransk/islending thegar vid vorum ad skoda 700.000 ara gamalt eldfjallagigs-vatn i rattanakiri! hun heitir sigurlina og thekkir meirad segja mio og claire! vid hittum hana svo seinna um kvoldid i mat og drykk og aetlum ad reyna ad gera eitthvad saman i kvold lika thvi hun er lika i phonm penh nuna :)

jaeja ekki meira i frettum i bili!
kvedja Sigga

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 >>