París
Hæ hæ!
Þá erum við komin til Parísar eftir langt 30 klst ferðalag! Rikki og Ásta tóku vel á móti okkur og við sváfum eins og englar síðustu nótt
Í dag kíktum við aðeins í búðir og heimsóttum svo Ástu í vinnuna áður en við fórum að skoða Eiffelturninn (neðan frá.. ætlum upp í hann á morgun eða hinn það var svo kalt í dag og langar raðir) Við höfum það bara rosa notalegt hérna og ætlum að reyna að nýta helgina vel. Svo er það bara Ísland á mánudaginn!
Úlfur er orðinn svo stór hann var nú bara rétt í þessu að rölta inn í stofu til okkar.. eða hann skríður út um allt og stendur svo upp og gengur meðan hann getur haldið sér í eitthvað
oh svo sætur!
jæja bless í bili sjáumst eftir 3 daga..
kveðja Sigga og Óttar
03/06/09 08:10:19 pm,